
Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíð 36
105 Reykjavík
sími 568-3725
sudurhlidarskoli@simnet.is
vefur á
Skólatorgi
Þú ert velkomin(n) í heimsókn í skólann að Suðurhlíð 36 hvenær sem
er, eða þá getur þú sent
okkur tölvupóst í netfang sudurhlidarskoli@simnet.is
Suðurhlíðarskóli er staðsettur við Fossvoginn og er því stutt að fara í SKEMMTILEG útivistarsvæði eins og fjöruna, Nauthólsvík og Öskjuhlíð.
Hvernig kemur útikennsla inn
í skóladaginn?
Suðurhlíðarskóli er staðsettur við Fossvoginn og er umhverfi skólans mjög
fjölbreytt. Stutt er að fara í fjöru, skóg og móa. Kennarar notfæra sér
þetta návígi við náttúruna til að gera kennslu í hinum ýmsu greinum meira
lifandi. Virðing við náttúruna er höfð að leiðarljósi og nemendum kennt
mikilvægi þess að axla ábyrgð á umhverfisvernd.
Fjaran, sem er steinsnar frá skólanum, er gjarnan nýtt sem útikennslustofa
þar sem t.d. náttúrufræði verður áþreifanlega raunveruleg.
Rétt hjá skólanum er “Grænilundur”, sem er svæði í eigu Reykjavíkurborgar
sem Suðurhlíðarskóli hefur tekið í fóstur. Í Grænalundi fá nemendur tækifæri
til að kynnast trjárækt með eigin höndum og hjörtum. Að nota hendurnar er
ekki síður mikilvægt en það að nota hugann og á vorin setja nemendur niður
kartöflur í Grænalundi. Þau fá síðan að njóta þeirrar einstöku upplifunar
sem felst í því að neyta eigin uppskeru í mötuneyti skólans á haustin.
Í vor stendur til að smíða bekki og borð og setja upp útiskólastofu í
Grænalundi þar sem unnin verða ýmis skemmtileg verkefni sem auðga og efla
námið.