Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíð 36
105 Reykjavík
sími 568-3725
sudurhlidarskoli@simnet.is
vefur á Skólatorgi

                                       


 

Þú ert velkomin(n) í heimsókn í skólann að Suðurhlíð 36 hvenær sem
er, eða þá getur þú sent
okkur tölvupóst í netfang sudurhlidarskoli@simnet.is

 

 

 

 

 

Suðurhlíðarskóli er rekinn af Aðventistum, sem hafa starfrækt skóla á Íslandi í yfir 100 ár, og hefur KRISTIN gildi að leiðarljósi.

Hvaða reynslu hafa Aðventistar af því að starfrækja skóla?
Árið 1905 hófu Aðventistar rekstur barnaskóla í Reykjavík af mikilli framsækni. Lengst af var skólinn starfræktur í hliðarbyggingu Aðventkirkjunnar að Ingólfsstræti 19. Frá árinu 1976 og þar til nýtt húsnæði var tekið í notkun við Suðurhlíð var barnaskóli Aðventista starfræktur í Skerjafirði. Rekstur grunnskóla Aðventista í núverandi húsnæði við Suðurhlíð 36 hófst haustið 1990 og var kennt í 1. til 10. bekk. Suðurhlíðarskóli er einn af rúmlega 5000 skólum sem Aðventistar starfrækja víða um heim.

Hvaða áhrif hafa kristin gildi á daglegt starf skólans?
Jesús sagði: „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra”. Í öllu starfi Suðurhlíðarskóla er þessi meginregla höfð að leiðarljósi. Nemendum er kennt að bera virðingu og ábyrgð hvert fyrir öðru. Þessi grunnur stuðlar að því að mjög jákvæður og hlýlegur andi ríkir í skólanum. Hver skóladagur hefst með morgunbæn.
Nemendur í 10. bekk gerðu eitt árið könnun á viðhorfi nemenda með því að spyrja nokkra nemendur sem höfðu verið í öðrum skólum hvernig þeim liði í Suðurhlíðarskóla. Svör nemenda lýsa á skemmtilegan og einlægan hátt hvernig hin kristnu gildi sem skólinn byggir á lýsa sér í verki:
"Mér finnst þessi skóli skemmtilegri. Það voru meiri læti í hinum skólanum og kennararnir hérna eru skemmtilegri."
"Mér líkar miklu betur hér. Manni er minna strítt og maður er ekki lagður í einelti."
"Hér er meiri lærdómsfriður, betra að læra því hér er minni hávaði."
"Krakkarnir eru allt öðruvísi og þau eru færri. Það er gott að læra hér."
"Þessi skóli er bara miklu betri og rólegri, ekki eins mikið verið að stríða og lemja og svoleiðis. Ekkert lagt í einelti."
"Munurinn á þessum skóla og öðrum er mikill. Hér er minna um ofbeldi og ekki jafn mikill æsingur í krökkunum."
Suðurhlíðarskóli er opinn öllum sem bera virðingu fyrir kristnum gildum, óháð því hvaða trúfélagi þeir tilheyra og borin er virðing fyrir trúarlegum skoðunum hvers og eins.
Umburðarlyndi, virðing og kærleikur eru rauðir þræðir sem renna gegnum allt skólastarfið í Suðurhlíðarskóla.