
Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíð 36
105 Reykjavík
sími 568-3725
sudurhlidarskoli@simnet.is
vefur á
Skólatorgi
Þú ert velkomin(n) í heimsókn í skólann að Suðurhlíð 36 hvenær sem
er, eða þá getur þú sent
okkur tölvupóst í netfang sudurhlidarskoli@simnet.is
Í Suðurhlíðarskóla er lögð áhersla á það að mennta börn til þess að verða HEILSTEYPTIR einstaklingar.
Hvað gerir skólinn til að
stuðla að því að börnin verði heilsteypt?
Þar
sem Suðurhlíðarskóli er kristinn skóli er lögð áhersla á að endurspegla
kristið gildismat. Þetta lýsir sér í því að lögð er áhersla á að ala upp
heilsteypta einstaklinga, einstaklinga sem hafa þróað með sér allt í senn,
vitsmunalegan, andlegan og líkamlegan þroska. Mikil áhersla er lögð á að
hjálpa nemendum að læra sjálfstæða og gagnrýna hugsun svo ákvarðanir þeirra
megi verða þeim og öðrum til velfarnaðar.
Skólastarf snýst ekki bara um nám. Öflugt nemendafélag starfar við skólann
undir leiðsögn kennara. Nemendafélagið skipuleggur skemmtanir svo sem
árshátíð, spilakvöld, ferðalög og margt annað skemmtilegt fyrir nemendur í
eldri bekkjum skólans. Á öllum skemmtunum skipulögðum af nemendafélaginu er
að minnsta kosti einn kennari viðstaddur.
Nemendur yngri bekkja halda bekkjarkvöld sem gjarnan eru samstarfsverkefni
nemenda, foreldra og kennara.