
Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíð 36
105 Reykjavík
sími 568-3725
sudurhlidarskoli@simnet.is
vefur á
Skólatorgi
Þú ert velkomin(n) í heimsókn í skólann að Suðurhlíð 36 hvenær sem
er, eða þá getur þú sent
okkur tölvupóst í netfang sudurhlidarskoli@simnet.is
Suðurhlíðarskóli er EINKASKÓLI í Reykjavík á grunnskólastigi
Hvað er einkaskóli og hverju
breytir það að skólinn er einkaskóli?
Einkaskóli, eða það sem nú er frekar kallaður sjálfstætt starfandi skóli, er
skóli sem er rekinn og starfræktur af einkaaðilum í stað þess að vera rekinn
af hinu opinbera. Grunnskólar eru reknir af sveitarfélögum, en einkaskólar á
grunnskólastigi eru reknir af einkaaðilum. Nokkur hefð er fyrir rekstri
einkaskóla á Íslandi og má þar nefna barnaskóla Aðventista, fyrirrennara
Suðurhlíðarskóla, sem rekinn hefur verið frá árinu 1905, Skóla Ísaks
Jónssonar sem hóf starfsemi árið 1926, Landakotsskóla sem hefur verið rekinn
frá árinu 1896, og ýmsa fleiri skóla sem hafa verið starfræktir um lengri
eða skemmri tíma.
Suðurhlíðarskóli er þátttakandi í Samtökum
sjálfstæðra skóla.
Í Suðurhlíðarskóla er uppfyllt lögbundin skólaskylda, en þar sem skólinn er
sjálfstæður hefur hann sveigjanleika til framsækni í kennslu og námsframboði.
Lögð er áhersla á að veita fyrsta flokks menntun samkvæmt aðalnámskrá, en auk
þess að leggja áherslu á persónulegan þroska hvers og eins með því að bjóða
upp á ýmiskonar viðbótarþjónustu og skapa umhverfi þar sem einstaklingurinn
fær að blómstra og þroskast þannig að hann verði heilsteyptur og skapandi.
Eru skólagjöld í
Suðurhlíðarskóla?
Sveitarfélögin greiða um 70% af rekstrarkostnaði einkaskóla. Þetta þýðir að
Suðurhlíðarskóli, eins og aðrir einkareknir grunnskólar, þarf að taka
skólagjöld til að brúa bilið milli framlags sveitarfélaga og
rekstrarkostnaðar. Skólagjöld fyrir nám í Suðurhlíðarskóla árið 2008-2009
verða sem hér segir miðað við jafnar greiðslur yfir almanaksárið:
Fyrir nemendur 1.-4. bekkjar: 8.400 kr. á mánuði
Fyrir nemendur 5.-10. bekkjar: 18.100 kr. á mánuði
Systkinaafsláttur er 30% fyrir annað barn og 50% fyrir þriðja.
Boðið er upp á lengda viðveru fyrir börn í 1.-4. bekk. Gjald
fyrir þessa þjónustu er 4.900 kr. á mánuði yfir skólaárið.
Skólagjöld eru endurskoðuð ár hvert í apríl og taka breytingar mið af
breytingum í launavísitölu. Breytingar á skólagjöldum taka gildi í upphafi
næsta skólaárs.