Í Suðurhlíðarskóla fær hver nemandi ATHYGLI og kennsla og verkefni eru sniðin að þörfum hvers og eins.

Hvernig birtist þessi athygli í daglegu starfi skólans?

Í Suðurhlíðarskóla er lögð áhersla á að hver einstaklingur fái að njóta sín. Komið er til móts við þarfir hvers og eins með markvissu einstaklingsmiðuðu námi. Nemendur gera áætlun fyrir nám vikunnar undir leiðsögn kennara þar sem miðað er við getu og þarfir hvers og eins. Þannig læra nemendur að gera raunhæfar áætlanir um eigin vinnu og jafnframt það sem er svo mikilvægt – að taka ábyrgð á eigin námi.

Með þessu móti fá t.d. bráðger börn tækifæri til að halda áfram á þeim hraða sem þeim hentar í stað þess að þurfa að bíða eftir hópnum. Boðið er upp á sérkennslu fyrir þá nemendur sem þess þurfa.

Stefna Suðurhlíðarskóla er að vera heimilislegur skóli með fáa nemendur. Með því að sameina 2 aldurshópa í hverri stofu gefast auknir möguleikar á sveigjanleika í námi.

Athyglin heldur áfram eftir að kennslu lýkur í lok dags, því þá stendur nemendum til boða að sitja heimanámstíma þar sem þeir geta unnið við heimanám sitt undir leiðsögn kennara. Þannig geta duglegir nemendur jafnvel farið heim í lok dags búnir að ljúka sínu dagsverki. Sérkennsla stendur til boða á heimanámstímanum fyrir þá nemendur sem hafa þörf fyrir hana.